Skátafélagið Kópar leitar að áræðanlegum einstaklingum til þess að taka að sér störf deildarforingja/starfsmanns fyrir starfsárið 2015 – 2016.
Um er að ræða tvær launaðar stöður.
Helstu verkefni deildarforingja eru:
Aðstoða við skipulagningu á starfi skátasveita
Sjá um samskipti við foreldra/forráðamenn
Leiðbeina foringjum eftir þörfum
Sjá um efniskaup fyrir fundi og aðra viðburði
Sinna daglegum störfum á skrifstofu
Sjá um útleigu á skálum og sal í eigu félagsins
Umsjón með viðburðum félagsins
Félagsútilegur
Sumardagurinn fyrsti
og fleiri.
Önnur tilfallandi störf sem stjórn fer fram á.
Æskilegt er að hafa reynslu af skátastarfi en ekki nauðsyn.
Umsóknir og fyrirspurnir skulu sendast á stjorn@kopar.is fyrir 20. júní.



