Skátafélagið Kópar býður upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, klifur, sig, rötun, útieldun, skátaleikir og fleira. Um er að ræða fimm daga námskeið. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2003 til 2007.
Námskeiðin hefjast kl. 09.00 og lýkur kl. 16.00. Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana. Eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag.
Í sumar eru eftirfarandi námskeið í boði:
Námskeið 1: 15. júní – 19. júní (*fjórir dagar vegna 17. júní)
Námskeið 2: 22. júní – 26. júní
Námskeið 3: 29. júní – 03. júlí
Námskeið 4: 06. júlí – 10. júlí
Námskeið 5: 13. júlí – 17. júlí
Námskeið 6: 20. júlí – 24. júlí
Námskeið 7: 27. júlí – 31. júlí
Námskeið 8: 04. ágúst – 07. ágúst ( *fjórir dagar vegna frídags verslunarmanna )
Námskeið 9: 10. ágúst – 14. ágúst
Námskeið 10: 17. ágúst – 21. ágúst
** Þátttökugjöld 
Útilífsnámskeið 1 vika 13.000 kr.
* Námskeið 1 og 8: 11.000 kr.
Systkinaafsláttur er 10%.
Innifalið í verði er öll dagskrá. Þá fá allir þátttakendur viðurkenningu í lok námskeiðs.
Þátttökugjöld skal greiða eigi síðar en á fyrsta degi námskeiðs. Tekið er á móti debet – og kreditkortum.
Boðið er upp á gæslu fyrir og eftir námskeiðin frá kl. 08.00 – 09.00 og frá kl. 16.00 – 17.00. Gjald fyrir gæslu er 2.000 kr. fyrir vikuna.
Skráning fer fram hér!



