Skátafélagið Kópar

Vormót Hraunbúa

Vormót2016

Helgina 10.-12. júní ætla fálkaskátarnir í Kópum að skella sér á vormót Hraunbúa í Kýsuvík.
Að þessu sinni er þema mótsins „Tími fyrir ævintýri“ og má búast við miklu fjöri alla helgina.
Mótið er byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna og verður ýmis dagskrá í boði.
Á laugardagskvöldi verður kvöldvaka og eru allir velkomnir. Á mótinu eru einnig starfræktar fjölskyldubúðir sem hafa verið vinsælar í gegnum tíðina. Þangað eru allir velkomnir, eldri skátar, fjölskyldur skáta og aðrir sem vilja upplifa skátaævintýrið á eigin skinni.

Verð: Mótsgjaldið er 4.000 kr.
Sameiginlegur kostnaður 1.500 kr

Ef að fjölskyldan vill koma með og vera á svæðinu þá eru hraunbúar að bjóða uppá Fjölskyldubúðir: 2.500 kr. per tjald

Greitt er fyrir útileguna með millifærslu inn á reikning skátafélagsins og kvittun (nafn barns í skýringu) send á netfangið mot@kopar.is. Leggið inn 5.500 kr Rn. 536 14 751030 Kt. 700371 2719
Skráning fer fram á www.skatar.is/vidburdarskraning
Matur er ekki innifalinn í mótsgjaldinu en við ætlum að hafa sameiginlegan kvöldmat fyrir skátana okkar á laugardags kvöldinu og kvöldkaffi bæði kvöldin.
Mæting á eigin vegum á mótsvæðið kl 18:00 10. júní og og það þarf að sækja skátana kl 15:30 12.

Vegvísun frá Kleifarvatni:

Krýsuvík

Kveðja, Fararstjórn Tengiliður: Valdi-8978818

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …