Skátafélagið Kópar

Drekaskátadagurinn

Drekaskátadagurinn verður haldinn sunnudaginn 5. mars næstkomandi þar sem allir drekaskátar á höfuðborgarsvæðinu hittast og fara saman í póstaleik. Að þessu sinni heldur skátafélagið Árbúar utan um daginn og auðvitað ætlum við í Kópum að fjölmenna.

Mæting er við Morgunblaðshúsið við Hádegismóa og endar dagurinn á sama stað. Dagurinn byrjar stundvíslega 13:30 og er því mikilvægt að allri séu komnir þá og tilbúnir í leikinn. Dagskráin er svo búin klukkan 16:00. Allir þurfa að vera **búnir að borða hádegismat **þegar þeir mæta en boðið verður upp á kakó og kex.

Við verðum úti allan tímann svo það er mjög mikilvægt að allir mæti klæddir til þess að vera úti 🙂

**Mikilvægt er að skrá drekaskátana inn á **https://skatar.felog.is/

Ef þið hafið einhverjar spurningar endilega hafið samband við okkur á drekaskatar@kopar.is 

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …