Skátafélagið Kópar

Félagsútilega 31. mars – 2. apríl

Jæja þá er komið að félagsútilegu fyrir fálkaskáta og eldri í skátafélaginu.

Hér að neðan kemur foreldrabréf og útbúnaðarlisti sem sendur var á foreldra alla fálkaskáta og eldri sem skráðir eru í félagið.

 

Félagsútilega Kópa

  1. mars – 2. apríl 2017

**
**Kæru foreldrar/forráðamenn

Núna styttist óðum í félagsútilegu. Útilegan fer fram í Vindáshlíð og ætlum við að skemmta okkur saman góðra vina hópi.
Mæting er kl 19:00 á föstudagskvöld. Við stefnum að brottför frá skátaheimilinu stuttu eftir það og er mikilvægt að börnin komi södd og sæl því það verður einungis boðið upp á kvöldkaffi seinna um kvöldið. Áætluð heimkoma er kl 16:00 á sunnudeginum og stoppar rútan á bílastæðinu hjá Reyni bakara á Dalveginum.

Dagskrá helgarinnar verður með hefðbundnu sniði og munu krakkarnir taka þátt í póstaleik, næturleik og stórleik svo eitthvað sé nefnt. Við munum eyða helginni að stórum hluta úti og er því mikilvægt að börnin komi með hlý og góð föt, gott er að hafa útbúnaðarlistann til hliðsjónar þegar pakkað er.
Skátafélagið mun sjá um allan mat og rútuferðir til og frá Vindáshlíð.

Þátttökugjald er 8.900 krónur og fer skráningin fram inn á skatar.felog.is og þarf að nota íslykil. Boðið er upp á að skipta greiðslum í tvennt.

Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið sent okkur tölvupóst á kopar@kopar.is eða haft samband á opnunartíma skrifstofunnar. Skrifstofan er opin mánudaga – fimmtudaga frá 17:00 – 19:00. Síminn í skátaheimilinu 554-4611.

Skátakveðja,
Skátaforingjar Kópa
———————————————————————————————————————

**Leyfisbréf félagsútilegu                                                                                                       **Skilað við brottför

Nafn skáta: ______________________________

Undirritaður forráðamaður veitir ofangreindum skáta leyfi til þess að fara í félagsútilegu Kópa 2015

_________________________________________
Undirskrift forráðamanns

 

Útbúnaðarlisti fyrir félagsútilegu

Fatnaður

Skátabúningur*

Peysur (helst flís)

Buxur (ekki gallabuxur)

Bolir

Nærföt

Sokkar

Ullarsokkar (hlýjir sokkar)

Termoföt/ullarföt (bolur og buxur)

Hlýjar buxur (flís)

Hlýja peysu (flís)

Vatnsheld utanyfir föt (gore-tex)

Húfa, vettlingar og trefill

Annað

Svefnpoki

Gönguskór/stígvél

** Snyrtidót**

Tannbursti

Tannkrem

Hárbursti

Þvottapoki

Sápa

Gott að hafa

Inniskór

Vasaljós

Það sem á að skilja eftir heima

GSM sími

Sælgæti

Gos- og orkudrykkir

iPod, geislaspilari

Tölvuleikir

 

 

**ATH
**Við biðjum foreldra og forráðamenn um að virða þá ósk skátaforingja að símar séu skildir eftir heima. Hægt er að ná í okkur í síma 775 4611 meðan á útilegunni stendur. Þetta er gert til þess að öll samskipti fari rétta leið.

*Munum að hafa almenna skynsemi að leiðarljósi þegar við pakkað er niður. Best er að yngstu skátarnir og foreldrar hjálpist að við pökkunina, þá veit skátinn hvar hlutirnir eru og lærir að pakka í leiðinni. Stundum getur verið ráð að flokka fötin í glæra plastpoka svo fötin fari ekki út um allt og auðvelt sé að sjá hvað er í hverjum poka. Þannig blotna fötin heldur ekki ef taskan blotnar. Hafið í huga að skátinn þarf að geta borið allan sinn farangur sjálfur. *

* *

* *

* *

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …