Skátafélagið Kópar

Páskafrí og sumardagurinn fyrsti

Í næstu viku hefst páskafrí hjá Kópum. Páskafríið verður 10. – 17. apríl. Fundir hefjast aftur 18. apríl.

Fimmtudaginn 20. apríl er sumardagurinn fyrsti og verða engir fundir þann daginn. Á sumardaginn fyrsta sér Skátafélagið Kópar um skrúðgönguna og fjölskyldu skemmtunina í Kópavogi. Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta og eiga góðan dag með okkur Skrúðgangan fer frá Digraneskirkju klukkan 13:30 og endar í Fífunni þar sem skemmtunin tekur við 🙂 Skátakveðja,
Skátafélagið Kópar

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Blöðruþjófar og bogfimi í Félagsútilegu Kópa

Helgina 16.–18. október fóru rúmlega 90 Kópar á Úlfljótsvatn í hina árlegu félagsútilegu. Félagsútilegan er fyrir alla fálkaskáta og eldri í félaginu og er ákveðinn hápunktur í …

Yfir 700 kílómetrar gengnir fyrir Þrist

Laugardaginn 19. september 2026 fór Áheitaganga Kópa 2026 fram, og það er óhætt að segja að skátarnir hafi lagt sitt af mörkum til skátafélagsins! Hópur skáta á aldrinum 7–20 ára …