Skátafélagið Kópar

Útilífsskóli Kópa 2018

Kópar auglýsa eftir skólastjóra og leiðbeinendum í Útilífsskólann í sumar.

Skólastjóri Útilífsskóla Kópa

Skátafélagið Kópar auglýsir eftir skólastjóra Útilífsskóla Kópa sumarið 2018. Í boði er skemmtilegt starf með duglegu starfsfólki og skemmtilegum krökkum á aldrinum 8-12 ára.

Helstu verkefni skólastjóra eru:

Skipuleggja námskeiðin

Halda utan um skráningar

Foreldrasamskipti

Dagleg stjórnun

Fleira tilfallandi

Hæfniskröfur:

Góð samskiptahæfni

Áhugi

Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

Hafa náð 22 ára aldri

Reynsla á stjórnun er kostur

Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur

Umsóknir skulu berast á stjorn@kopar.is en athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um sumarstarf á vef Kópavogsbæjar undir heitinu „Aðstoðarleiðbeinandi á sumarnámskeiðum“. Umsóknarfrestur er til 19. mars 2018

Frekari upplýsingar veitir Hreiðar Oddsson, hreidar@kopar.is

 

Leiðbeinandi í Útilífsskóla Kópa

 

Skátafélagið Kópar auglýsir eftir leiðbeinendum í Útilífsskóla Kópa sumarið 2018. Um er að ræða skemmtilegt sumarstarf með frábæru starfsfólki og skemmtilegum krökkum á aldrinum 8-12 ára.

Helstu verkefni og ábyrgð leiðbeinanda eru:

Þáttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi

Frágangur og þrif í lok hvers dags samkvæmt ákvörðun skólastjóra.

Hæfniskröfur:

Umburðarlyndi, jákvæð hvatning og leikgleði

Reynsla af starfi með börnum æskileg

Vera 18 ára á árinu (fædd 2000 eða fyrr)

Umsóknir skulu berast á stjorn@kopar.is en athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um sumarstarf á vef Kópavogsbæjar undir heitinu „Aðstoðarleiðbeinandi á sumarnámskeiðum“. Umsóknarfrestur er til 19. mars 2018

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …