Skátafélagið Kópar

Kópamót!

1.- 3. júní 2018

Kæru foreldrar/forráðamenn

Núna styttist óðum í Kópamóts sem er fyrir fálkaskáta og eldri skáta í Kópum. Útilegan verður haldin á Úlfljótsvatni og ætlum við að skemmta okkur saman í góðra vina hóp.

Mæting er kl. 17:30 á föstudeginum á bílastæðinu hjá Digraneskirkju. Við stefnum að brottför stuttu eftir það og er mikilvægt að börnin komi södd og sæl því það verður ekki matartími fyrr en seinna um kvöldið. Áætluð heimkoma er kl. 17:30 á sunnudeginum og stoppar rútan á bílastæðinu hjá Digraneskirkju.

Helgin verður með hefðbundnu sniði og munu krakkarnir taka þátt í allskonar spennandi dagskrá. Við munum eyða tímanum okkar úti og er því mikilvægt að börnin komi með hlý og góð föt, svefnpoka og dýnu. Gott er að hafa útbúnaðarlistann til hliðsjónar þegar pakkað er, hann má finna hér

Skátafélagið mun sjá um rútuferðir til og frá Úlfljótsvatni, kvöldkaffi bæði kvöldin og kvöldmat á laugardeginum.

Þátttökugjald er 7.500 krónur og fer skráningin fram inn á skatar.felog.is og þarf að nota íslykil. Skráning verður opnuð mánudaginn 30. apríl.
Boðið er upp á að skipta greiðslum í tvennt.

Frekari upplýsingar má finna á kopar.is/kopamot
Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið sent okkur tölvupóst á kopar@kopar.is eða haft samband á opnunartíma skrifstofunnar. Síminn í skátaheimilinu 554-4611.

Skátakveðja,
Skátaforingjar Kópa

kopamot

tjalda

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …