Skátafélagið Kópar

Félagasútilega 2019

Félagsútilega Kópa
1. – 3. febrúar 2019

Kæru foreldrar/forráðamenn

Núna styttist óðum í félagsútilegu. Útilegan fer fram á Úlfljótsvatni og ætlum við að skemmta okkur saman í góðra vina hópi.
Mæting er kl 19:00 á föstudagskvöld í skátaheimilið okkar að Digranesvegi 79. Við stefnum að brottför frá skátaheimilinu stuttu eftir það og er mikilvægt að börnin komi södd og sæl því það verður einungis boðið upp á kvöldkaffi seinna um kvöldið. Áætluð heimkoma er kl. 15:00 á sunnudeginum og stoppar rútan á bílastæðinu hjá Reyni bakara á Dalveginum.

Dagskrá helgarinnar verður með hefðbundnu sniði og munu krakkarnir taka þátt í póstaleik og næturleik svo eitthvað sé nefnt. Við munum eyða helginni að stórum hluta úti og er því mikilvægt að börnin komi með hlý og góð föt, gott er að hafa útbúnaðarlistann til hliðsjónar þegar pakkað er.
Skátafélagið mun sjá um allan mat og rútuferðir til og frá Úlfljótsvatni.
Þátttökugjald kemur síðar og fer skráningin fram inn á skatar.felog.is í vikunni og þarf að nota íslykil/rafrænu auðkenni. Boðið er upp á að skipta greiðslum í tvennt. Forsenda fyrir skráningu í útileguna er að vera búin/n að skrá sig í félagið. Skráning í félagið fer einnig fram á skatar.felog.is Öll óþol, ofnæmi, greiningar, lyf o.s.frv. verða að vera skráð í athugasemdir þegar barnið er skráð.
Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið sent okkur tölvupóst á kopar@kopar.is eða haft samband á opnunartíma skrifstofunnar. Skrifstofan er opin mánudaga – miðvikudaga frá 16:30 – 20:00. Síminn í skátaheimilinu er 554-4611.

Útbúnaðarlista má finna hér

Skátakveðja,
Skátaforingjar Kópa

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …