Sæl öll,
Eins og öllum er kunnugt erum við að standa aftur frammi fyrir skrítnum tímum, hertar takmarkanir og fjölgun smita í samfélaginu. Skátafélagið Kópar þurfti að aflýsa öllum skátafundum síðustu vikur, þar sem staðan hefur lítið breyst í samfélaginu munum við aflýsa öllum komandi skátafundum þar til við vitum betur stöðuna. Við fylgjumst vel með þeim tilmælum sem koma fram þangað til.
Við munum senda út verkefni sem hægt er að gera heima við, svo endilega fylgist vel með okkur á facebook https://www.facebook.com/skfkopar og á instagram https://www.instagram.com/skfkopar/
En þar munum við koma með ýmsar hugmyndir að verkefnum. Ef einhverjar spurningar vakna, ef þið eruð með skemmtilegar lausnir á skátafundum eða einfaldlega viljið spjalla þá er ekkert mál að senda á okkur, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, facebook, instagram eða sportabler 🙂



