Skátafélagið Kópar

Hertar sóttvarnarreglur

Fyrr í dag, miðvikudaginn 24. mars 2021, hélt ríkisstjórnin blaðamannafund þar sem tilkynnt var um nýjar takmarkanir. Þar kom fram að grunn-, framhalds- og háskólum verði lokað næstu þrjár vikur og hafa Kópar og Skátamiðstöðin tekið þá ákvörðun að færa allt skátastarf á netið frá og með núna.
Því verður gert hlé á öllu skátastarfi í raunheimum þar til þessum takmörkunum lýkur.
Við fylgjumst vel með stöðu málanna og látum ykkur vita um leið og nýjar upplýsingar koma fram!
Ef einhverjar spurningar vakna, vangaveltur eða ykkur vantar bara að spjalla, þá geti þið alltaf heyrt í okkur í Kópum eða Skátamiðstöðinni!🥰
Við hvetjum ykkur til að nýta þau verkfæri sem til eru til að senda á skátana ykkar og þar má nefna: www.skatarnir.is/studkvi
Svo er um að gera að taka gott páskafrí, slaka á og koma tvíefld til baka!
Rafrænt knús til ykkar allra<3
https://skatarnir.is/vegna-nyrra-vidmida-fra-stjornvoldum/

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …