Skátafélagið Kópar

Útilífskóli Kópa 2022

Skráning í Útilífsskólan hefst miðvikudaginn 27. apríl!

Við mælum með námskeiðunum fyrir alla hressa krakka sem langar að prófa eitthvað nýtt í sumar

🤩

Skátafélagið Kópar býður upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann og er haldið í skátaheimili Kópa við Digranesveg 79. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Námskeiðin eru fjölbreytt og reynt eftir fremsta megni að hafa ólíka dagskrá í hverri viku.
Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2010 – 2014.
Námskeiðin eru frá kl. 09.00 – 16.00 og boðið er upp á gæslu á milli 08.00 – 09.00 og kl. 16.00 – 17.00 sem greiða þarf aukalega fyrir.
Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana, eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag stútfullan af ævintýrum.

Námskeið 1. 13. – 16.júní – 4 daga námskeið

Námskeið 2. 20. – 24. júní

Námskeið 3. 27.júní – 1.júlí

Námskeið 4. 4. – 8.júlí

Námskeið 5. 11. – 15.júlí

Námskeið 6. 2. – 5. ágúst – 4 daga námskeið

Námskeið 7. 8. – 12.ágúst

Námskeið 8. 15. – 19. ágúst

Námskeiðsgjald er 17.000 kr. en 14.500 kr. fyrir 4 daga viku.
Gjald fyrir gæslu er 4.000 kr.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skátafélagsins Kópa á facebook síðu Útilífsskóla Kópa eða senda póst á Útilífsskólann utilifsskoli@kopar.is

Skráning er: https://www.sportabler.com/shop/kopar

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …