Skátafélagið Kópar

Kvöldvaka 20.febrúar!

Skátadaginn 20. febrúar nk, ætlum við að halda kvöldvöku í skátastíl í skátaheimilinu Bakka í Kópavogi.
Við minnumst stofnanda skátahreyfingarinnar Sir Robert Baden Powells og konu hans Olave, Lady Baden-Powell en þau voru fædd 22. febrúar.

Öllum gildisskátum á landinu, sem eiga heimangengt, er boðið á kvöldvökuna ásamt félögum í öðrum formlegum og óformlegum hópum skáta.

Kvöldvakan hefst kl. 20:00

Frábærir stjórnendur og tónlistarfólk stjórna skátasöngvum.

Gert er ráð fyrir að kvöldvakan standi í um klukkustund.
Að lokinni kvöldvöku verður boðið skátakakó 🙂

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …