Skráning er hafin í Útilífsskóla Kópa sumarið 2026!
Útilífsskólinn er fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.
Útilífsskóli Kópa býður upp á ævintýralegt námskeið í sumar. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna. Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir mikilli útiveru alla dagana. Eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag stútfullan af ævintýrum.
Námskeiðin eru frá kl. 09.00 – 16.00 alla virka daga námskeiðsvikunnar, frí á rauðum dögum en greitt er minna fyrir námskeiðsvikur með rauðum dögum (t.d. 17. júní og Frídagur verslunarmanna)



