Skátafélagið Kópar

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið

Það er því um að gera að hefjast handa við prjónaskapinn en húfan er bæði þægileg og fljótprjónuð. Ef enginn í kringum skátann hefur tök á að prjóna húfu þá er hægt að hafa samband við kopar@kopar.is og við reddum málunum. Sömuleiðis ef þið hafið tök á að prjóna húfu á fleiri en einn skáta þá má láta vita af því.

Hér má finna uppskriftina að húfunni.

Hér má finna tengil á munstrið í húfunni

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …

Útilífsskóli Kópa 2026

Skráning er hafin í Útilífsskóla Kópa sumarið 2026! Útilífsskólinn er fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Útilífsskóli Kópa býður upp á ævintýralegt námskeið í sumar. Námskeiðin byggja …