Skátafélagið Kópar

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu sérstaka athygli fyrir sterkt bakland og metþátttöku í fjölskyldubúðum. Svo má auðvitað ekki gleyma þeim 23 dróttskátum ásamt 4 foringjum sem fóru út til Skotlands á Blair Atholl sem gekk eins og í sögu.

Það er því frá mörgu að segja og deila eftir viðburðaríkt skátasumar.

Eins og undanfarin ár fer skráning í Kópa fram á Abler. Sjáumst í skátunum!

Fundartímar í Kópum:

Drekaskátar (8-9 ára):
Drekaskátasveitin Hattífattar fundar á miðvikudögum kl. 16:30-18:00. Sveitarforingi er Erla Sóley.

Fálkaskátar (10-12 ára):
Þrjár Fálkaskátasveitir eru í Kópum.

Spörfuglar funda á mánudögum kl. 18:00-19:30. Sveitarforingi er Ívar Máni.

Furðufuglar funda á á miðvikudögum kl. 18:00-19:30. Sveitarforingi er Silja Líf.

Ránfuglar funda á fimmtudögum kl. 18:00-19:30. Sveitarforingi er Elín Snæfríður.

Dróttskátar (13-15 ára):
Dróttskátasveitin Andrómeda fundar á fimmtudögum kl. 20:00-22:00. Sveitarforingi er Páll Kristinn.

Rekkaskátar (16-19 ára):
Rekkaskátasveitin Fenrir fundar á mánudögum kl. 20:00-22:00. Sveitarforingi er Erla Sóley.

Róverskátar og Vættaskátar (20 ára+):
Unnið er að því að virkja Róversveitina og Vættasveitina á ný. Skráið ykkur í félagið á Abler til að fá allar helstu upplýsingar um skátastarf fyrir 20 ára og eldri.

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Kópahúfan snýr aftur!

Kópahúfan víðfræga var einkenni Kópa á Landsmóti skáta 2012 og 2014. Fararstjórar Kópa á Landsmót skáta 2026 hafa ákveðið að endurvekja húfuna sem einkenni félagsins fyrir mótið …

Afmælishátíð Kópa 22. febrúar 2026

Skátafélagið Kópar var stofnað þann 22. febrúar 1946 og fagnar 80 ára afmæli 22. febrúar 2026. Kópar blása því til afmælishátíðar sunnudaginn 22. febrúar kl. 13:00 í húsnæði …

Útilífsskóli Kópa 2026

Skráning er hafin í Útilífsskóla Kópa sumarið 2026! Útilífsskólinn er fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Útilífsskóli Kópa býður upp á ævintýralegt námskeið í sumar. Námskeiðin byggja …