Skátafélagið Kópar

Blöðruþjófar og bogfimi í Félagsútilegu Kópa

Fálkaskáti spennir bogann í Strýtunni

Helgina 16.–18. október fóru rúmlega 90 Kópar á Úlfljótsvatn í hina árlegu félagsútilegu. Félagsútilegan er fyrir alla fálkaskáta og eldri í félaginu og er ákveðinn hápunktur í starfinu ár hvert. Í ár var hún sannkölluð hátíðarútilega, því Kópar fögnuðu 80 ára afmæli sínu þann 22. febrúar síðastliðinn og var helgin því öll í afmælisþema. Félagsútilegan var einnig ákveðin uppbót fyrir félagsútileguna sem átti að vera í mars 2026 en var flutt í bæinn vegna óveðurs.

Lagt var af stað frá Digraneskirkju á föstudagskvöldi. Þegar komið var á Úlfljótsvatn komu skátarnir sér fyrir og fengu sér kvöldkaffi áður en ró færðist yfir hópinn og allir fóru að sofa til að vera klár í pakkaðann laugardag.

Laugardagurinn hófst á tjaldbúðaskoðun og formlegri setningu útilegunnar. Svo tók dagskráin við. Skátarnir spreyttu sig í klifurturninum og prófuðu bogfimi. Í skátaleikunum kepptu tvö lið um að kveikja eld og verða fyrst til að brenna í sundur band sem strengt var yfir eldstæðið. Fyrir áhugasama var einnig í boði að styrkja hæfileikana í að súrra eða föndra vinaarmbönd. Um kvöldið var svo haldin kvöldvaka með skemmtiatriðum sem skátarnir höfðu æft yfir helgina.

Þegar myrkrið skall á kom í ljós að einhver hafði stolið öllum afmælisblöðrunum úr afmælinu! Í næturleiknum þurftu skátarnir að endurheimta þær með því að leysa þrautir á póstum víðs vegar um svæðið. Þau þurftu meðal annars að tefla, byggja mannlegan pýramída, komast í gegnum þrautabraut með egg og borða eitthvað sem seint verður kallað lostæti. Fyrir hverja leysta þraut fékkst blaðra með staf, og saman mynduðu stafirnir orðið BÁTAR. Á leiðinni þurfti líka að vara sig á bófum og lygurum sem reyndu eftir bestu getu að leiða skátana af réttri braut.

Seinna um nóttina bættust nýir dróttskátar í hópinn þegar háleynileg dróttskátavígsla fór fram við varðeldinn.

Sunnudagurinn fór í morgunmat, frágang og þrif áður en haldið var heim. Rútan kom í Kópavog rétt eftir hádegi með þreytta en sæla skáta.

Stórar þakkir fá foringjar og rekkaskátar sem lögðu mikla vinnu í að gera helgina ógleymanlega, og auðvitað skátarnir sjálfir fyrir frábæra stemningu. Við hlökkum strax til næstu félagsútilegu eftir ár!

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Yfir 700 kílómetrar gengnir fyrir Þrist

Laugardaginn 19. september 2026 fór Áheitaganga Kópa 2026 fram, og það er óhætt að segja að skátarnir hafi lagt sitt af mörkum til skátafélagsins! Hópur skáta á aldrinum 7–20 ára …

Skátafundir byrjaðir á ný!

Skátafundir eru byrjaðir á ný eftir sumarfrí. Skátastarfið fór hins vegar ekki í neitt sumarfrí enda flestir Kópar á fullu í sumar á Landsmóti skáta á Akureyri. Kópar vöktu …