Skátafélagið Kópar

Skátar bjóða til fjölskylduhátíðar á sumardaginn fyrsta

Skáti gerir kandífloss

Þessi frétt birtist fyrst í Kópavogspóstinum þann 22. apríl 2026.

Skátafélagið Kópar í Kópavogi ætlar að fagna sumrinu með fjölskylduhátíð við skátaheimili sitt á Digranesvegi 79 á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 23. apríl. Hátíðin fer fram frá kl. 13:00 til 16:00 og er öllum fjölskyldum í Kópavogi boðið að taka þátt.

Um er að ræða endurvakningu á vinsælum viðburði sem Kópar stóðu fyrir á árum áður, en nokkur ár eru síðan slík hátíð var síðast haldin. Nú ætla skátarnir að blása nýju lífi í þessa hefð og bjóða upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Á hátíðarsvæðinu verður fjölbreytt afþreying fyrir börn og fjölskyldur, meðal annars hoppukastalar, himnastigaáskorun, varðeldafjör og fjölskylduratleikur. Þá verða skátar einnig með sölu á kandíflossi, vöfflum og öðru góðgæti, en ágóði rennur til fjáröflunar fyrir skátamót sem framundan eru í sumar.
Starf Skátafélagsins Kópa hefur verið öflugt að undanförnu, en félagið fagnaði nýverið 80 ára afmæli sínu. Mikil gróska er í starfinu og skráning er þegar hafin á sumarnámskeið sem njóta jafnan mikilla vinsælda. Skátastarf er ætlað börnum og ungmennum á breiðum aldri og leggur áherslu á útivist, vináttu, sjálfstæði og ævintýri þar sem alltaf er mikið fjör.

Kópavogspósturinn sló á þráðinn til Þórhildar Elínardóttur Magnúsdóttur, sem er framkvæmdastjóri Skátafélagsins Kópa

Geturðu sagt okkur frá fjölskylduhátíðinni á sumardaginn fyrsta, hvað bíður gesta? ,,Þetta er klassísk sumarhátíð með skátaívafi. Við verðum með hoppukastala og skemmtilegan fjölskylduratleik svo verður boðið upp á að grilla hækbrauð yfir opnum eldi. Þá erum við með svo skemmtilegt kennileiti við skátaheimilið sem er himnastiginn svo við skorum á alla gesti hátíðarinnar að skella sér að minnsta kosti eina ferð í stigann. Skátarnir ætla að halda utan um fjölda ferða sem verða farnar. Skátagildið í Kópavogi verður að sjálfsögðu með sitt árlega vöfflukaffi inni í skátaheimilinu, en það er ómissandi hefð fyrir mörg á þessum degi. Við hlökkum líka til að bjóða fólk velkomið og kynna því fyrir fallega skátaheimilinu okkar, og svæðinu þar í kring,“ segir Þórhildur.

Hvað varð til þess að þið ákváðuð að endurvekja þessa hátíð eftir nokkurra ára hlé? ,,Það er endurnýjaður kraftur í skátafélaginu og við fundum að Kópavogsbúar söknuðu þess að vera með hátíð á þessum degi. Kópar stóðu í marga áratugi fyrir hátíðarhöldum á Sumardaginn fyrsta og er þetta í raun hluti af arfleið félagsins. Kópavogsbær var til í að styrkja okkur í þessu verkefni aftur og við erum spennt að fara af stað með hefðina að nýju.“

Má segja að þetta verði dagur fyrir alla fjölskylduna eða fyrir hvaða aldurshópa er dagskráin? ,,Þetta er dagur fyrir öll – bæði stór og smá! Hvort sem það eru hoppukastalarnir, himnastiginn eða kandíflossið sem heillar, þá er eitthvað á Fjölskylduhátíðinni fyrir alla aldurshópa. Fjölskylduratleikurinn í Kópavogsdal er líka tilvalið samvinnuverkefni barna og fullorðinna þar sem það er kostur að vera með breitt aldursbil á liðinu – börn kunna nefnilega ýmislegt sem fullorðnir kunna ekki.“

Skátarnir verða með sölu á veitingum í fjáröflunarskyni og hvað er framundan hjá ykkur í sumar? ,,Skátar í fjáröflun verða með sölu á kandífloss, nammi, vöfflum og ýmsu öðru góðgæti. Skátarnir eru að safna fyrir skátamótum sumarsins en Kópar eru að senda stóra hópa barna bæði á Landsmót skáta á Akureyri sem og til Skotlands á skátamótið Blair Atholl sem Kópar hafa verið fastagestir á í áratugi. Þetta kostar allt sitt og rennur allur hagnaður af sölunni beint í ferðasjóð skátanna sem standa vaktina í sjoppunni.“

Og er ekki skráning hafin á sumarnámskeiðin, hvað verður í boði fyrir börn í sumar? ,,Já, við erum glöð að geta sagt frá því að skráning er þegar hafin á sumarnámskeið okkar og þau njóta jafnan mikilla vinsælda meðal barna í Kópavogi. Kópar hafa lengi vel boðið upp á vinsæl útivistarnámskeið á sumrin og við höldum því áfram í sumar fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Skráning er inn á Abler á síðu Skátafélagsins Kópa og allar helstu upplýsingar eru á vefsíðu okkar kopar.is „

Og Skátafélagið Kópar er enginn nýgræðingur því þið hélduð nýverið upp á 80 ára afmæli felagsins, hvernig gekk það og hefur afmælisbarnið elst og dafnað vel? ,,Við erum mjög stolt af þessari löngu sögu! Skátafélagið Kópar var stofnað 22. febrúar 1946 sem þýðir að félagið er eldra en sjálfur Kópavogsbær og elsta starfandi félag bæjarins, sem segir okkur eitthvað um tengsl okkar við þennan bæ. Við héldum upp á afmælið í febrúar með hátíðardagskrá í Fjallasal Hjálparsveitar Skáta í Kópavogi enda alveg ljóst að skátaheimilið sjálft myndi ekki rúma alla afmælisgestina. Þá er líka skemmtileg tenging við Hjálparsveitina sem var stofnuð af Kópum á sínum tíma. Nokkur hundruð manns sóttu afmælið og var dagurinn eftirminnilegur í alla staði. Skátafélagið hefur dafnað vel, í dag eru yfir 200 skátar starfandi með Kópum og erum við eitt stærsta skátafélag landsins.“

En fyrir hvern er skátastarfið. Geta allir verið með og tekið þátt? ,,Skátastarf er opið öllum börnum og ungmennum á aldrinum 7-25 ára. Fullorðnir eru velkomnir líka og starfa nokkir hópar eldri skáta í Kópum. Við tökum vel á móti öllum óháð bakgrunni eða reynslu. Það þarf ekkert að kunna eða geta, bara að búa yfir áhuganum og viljanum til að taka þátt! Við skiptum skátum í aldursskiptar sveitir sem funda vikulega yfir árið. Það er eitthvað fyrir öll í Kópum, við erum til að mynda með einu starfandi sjóskátasveitirnar á landinu í samstarfi við Siglingafélagið Ými en sjóskátastarfið var sett á laggirnar 2024 og hefur gengið vonum framar, enda fullt í sveitirnar eins og er.“

Hvað gefur skátastarfið börnum og ungmennum að þínu mati? ,,Skátastarfið gefur börnunum svo margt. Þau læra að vera sjálfstæð, takast á við áskoranir, verja tíma náttúrunni og vinna saman í hóp. Útivist hefur alltaf verið í brennidepli hjá okkur, við eigum til dæmis útileguskálann Þrist í Þverárdal við Esjurætur sem var byggður af góðum hópi Kópa á sjöunda áratugnum og það eru alltaf tímamót í lífi ungra Kópa þegar þau fá að fara í sína fyrstu ferð þangað. En sennilega er vináttan það mikilvægasta við skátastarfið, í skátunum myndast tengsl sem endast alla ævi,“ segir Þórhildur að lokum og bætir við að aðstandendur hátíðarinnar hlakki til að taka á móti sem flestum og fagna sumrinu saman með íbúum Kópavogs á þessum skemmtilega degi.

← Allar fréttir

Fleiri fréttir

Blöðruþjófar og bogfimi í Félagsútilegu Kópa

Helgina 16.–18. október fóru rúmlega 90 Kópar á Úlfljótsvatn í hina árlegu félagsútilegu. Félagsútilegan er fyrir alla fálkaskáta og eldri í félaginu og er ákveðinn hápunktur í …

Yfir 700 kílómetrar gengnir fyrir Þrist

Laugardaginn 19. september 2026 fór Áheitaganga Kópa 2026 fram, og það er óhætt að segja að skátarnir hafi lagt sitt af mörkum til skátafélagsins! Hópur skáta á aldrinum 7–20 ára …