Laugardaginn 19. september 2026 fór Áheitaganga Kópa 2026 fram, og það er óhætt að segja að skátarnir hafi lagt sitt af mörkum til skátafélagsins! Hópur skáta á aldrinum 7–20 ára gekk samtals yfir 700 kílómetra og safnaði yfir hálfri milljón króna í áheitum fyrir endurbótum á skátaskálanum Þristi.
Áheitagangan er reglulegur liður í starfi Kópa. Skátarnir velja sér gönguleið og fá vini og vandamenn til að heita á sig, ýmist fyrir hvern genginn kílómetra eða gönguna í heild. Í ár var safnað fyrir Þristi í tilefni 60 ára afmælis skálans. Þristur hefur gegnt lykilhlutverki í sögu félagsins og flestir Kópar eiga þaðan góðar skátaminningar. Nú þarf að dytta aðeins að honum svo hann endist í önnur 60 ár af skátaútilegum.
Fjórar vegalengdir voru í boði og hóparnir lögðu af stað á mismunandi tímum og stöðum. Hörðustu göngugarparnir, rekkaskátarnir, gistu í Þristi aðfaranótt laugardags og lögðu af stað eldsnemma um morguninn í 45 kílómetra göngu sem tók rúma tíu tíma. Fyrir marga þeirra var gangan líka skref í átt að forsetamerkinu, sem krefst þess að skátinn hafi gengið að minnsta kosti 45 km leið. Á leiðinni bættust hinir hóparnir smám saman við. Dróttskátarnir slógust í för við Hafravatn eftir 20 km göngu frá Hleiðru, fálkaskátarnir bættust við við Rauðhóla og loks drekaskátarnir við Elliðahvamm.
Á göngunni trölluðu skátarnir og skemmtu sér, deildu sögum úr skátastarfinu og nutu samverunnar í góðu gönguveðri. Gangan endaði í Skátaheimili Kópa við Digranesveg, þar sem göngugarparnir fengu kleinur og kakó. Allir sem tóku þátt fengu stikumerki fyrir sína vegalengd.
Skátarnir voru sér og sínum til fyrirmyndar og lögðu sannarlega sitt af mörkum til félagsins. Þristur fær gott dekur næstu misserin þökk sé þeim! Kærar þakkir til allra göngugarpa, foringjanna sem fylgdu hverjum hópi alla leið, og allra sem hétu á skátana okkar.



