Skátafélagið Kópar

Skátaskálinn Þristur

Skáli við rætur Esjunnar, undir Móskarðshnúkum. Svefnpláss fyrir allt að 30 manns.

Bóka Þrist
Skátaskálinn Þristur í snjó undir norðurljósum.

Skátaskálinn Þristur var byggður árið 1966 og stendur við rætur Esjunnar, undir Móskarðshnúkum. Í skálanum er matsalur með borðum og bekkjum, eldhús og svefnloft. Svefnpláss er fyrir allt að 30 manns á gólfi.

Skálinn er leigður út og má panta hann á kopar@kopar.is.

Lýsing

Þristur var byggður á árunum 1966–1969 en var allur tekinn í gegn árið 2008. Skálinn samanstendur af sal, eldhúsi, salerni og einu svefnlofti. Skálinn er kyntur með gasofnum og kamínu.

Ekkert rafmagn er í skálanum og ekkert rennandi vatn. Sækja þarf drykkjarvatn og vatn til uppvasks í ána sem er skammt frá. Klósettið í skálanum er ekki nothæft eins og er.

Leigutaki sér um að taka sorp með sér til baka. Hreinlætisvörur og áhöld eru afhent með lykli til leigutaka og skilar hann þeim aftur með lyklinum.

Lykillinn

Lykilinn að skálanum má sækja í Kópaheimilið (Digranesvegi 79) á meðan skátafundum stendur. Lyklinum verður að skila í vikunni eftir útleigu á meðan skátafundum stendur, ásamt óhreinum tuskum.

Akstur

Ekið er sem leið liggur inn Mosfellsdalinn, framhjá Gljúfrasteini og u.þ.b. 2 km til viðbótar. Þá er afleggjari til vinstri (í norður) og við hann stendur rafmagnsskúr sem er A-hús. Ekið er upp þann afleggjara þar til komið er að bænum Hrafnhólum.

Þar er farið niður fyrir bæinn meðfram ánni og þegar komið er að vaði yfir ána er ekki farið lengra heldur farið í gegnum hlið sem er þar hægra megin. Þá er ekið eins og leið liggur eftir veginum þangað til komið er að stóru gili. Þar er best að leggja bílnum og ganga síðasta spölinn, sem er u.þ.b. 300 m eða 10 mínútna ganga.

Á sumrin er hægt að komast að planinu við gilið á fólksbíl eða góðum jeppa en á veturna er það ekki ráðlagt.

Dagskrármöguleikar

Góðir möguleikar eru á að fara í skemmtilegar gönguferðir, náttúruskoðun, sig og klifur. Hægt er að baða sig í ánni á sumrin og fara í berjamó á haustin. Stutt er í Skálafell og útsýnisskoðun af Esju.