Skátaskálinn Þristur var byggður árið 1966 og stendur við rætur Esjunnar, undir Móskarðshnúkum. Í skálanum er matsalur með borðum og bekkjum, eldhús og svefnloft. Svefnpláss fyrir allt að 30 manns á gólfi.
Skálinn er leigður út og má panta hann á kopar@kopar.is
Daggjald: Samkomulag
Næturgjald: 1500.- kr. pr.mann
Helgargjald: 2500.- kr. pr.mann
Lágmarksleiga: kr. 15.000.-
Akstur:
Ekið er sem leið liggur inn Mosfellsdalinn, framhjá Gljúfrasteini og u.þ.b. 2 km til viðbótar. Þá er afleggjari til vinstri (í norður) og við hann stendur rafmagnsskúr sem er A-hús. Ekið er upp þann afleggjara þar til komið er að bænum Hrafnhólum. Þar er farið niður fyrir bæinn meðfram ánni og þegar komið er að vaði yfir ánna er EKKI farið lengra heldur farið í gegnum hlið sem er þar hægra megin. Þá er ekið eins og leið liggur eftir veginum þangað til komið er að stóru gili. Þar er best að leggja bílnum og ganga síðasta spölin sem er u.þ.b. 300 m./ 10 mín ganga. Á sumrin er hægt að komast að planinu við gilið á fólksbíl/góðum jeppa en á veturna er það ekki ráðlagt. Snjór er ruddur að Hrafnhólum og er um 30 mínútna gangur þaðan að skála.
Lýsing:
Þristur var byggður á árunum 1966-1969 en var allur tekinn í gegn árið 2008. Skálinn samanstendur af sal, eldhúsi, salerni og einu svefnlofti. Leigutaki sér um að taka sorp með sér til baka og eru hreinlætisvörur og áhöld afhent með lykli til leigutaka og skilar hann þeim aftur með lyklinum. Skálinn er kynntur með gasofnum og kamínu. Ekkert rafmagn er í skálanum en búið er að koma upp sólarrafhlöðu. Vatnssalerni er komið í húsið en vatnsmagn er takmarkað eftir tíðarfari. Hægt er að nota salernið allan ársins hring ef sótt er vatn í ánna sem er skammt frá skálanum.
Lykilinn að skálanum má sækja í Kópaheimilið (Digranesvegi 79) á milli kl. 17:00-19:00 í vikunni fyrir pantaða helgi. Greiða þarf 1.000 kr. tryggingargjald fyrir lykilinn sem greiðist til baka þegar lyklinum er skilað. Lyklinum verður að skila strax á mánudegi eftir útleigu á milli kl. 17:00-19:00 ásamt óhreinum tuskum.
Dagskrármöguleikar:
Góðir möguleikar eru á að fara í skemmtilegar gönguferðir, náttúruskoðun, sig og klifur, hægt að baða sig í ánni á sumrin, berjamó á haustin, stutt í Skálafell og útsýnisskoðun af Esju.