Kópar auglýsa eftir skólastjóra og leiðbeinendum í Útilífsskólann í sumar.
Skólastjóri Útilífsskóla Kópa
Skátafélagið Kópar auglýsir eftir skólastjóra Útilífsskóla Kópa sumarið 2018. Í boði er skemmtilegt starf með duglegu starfsfólki og skemmtilegum krökkum á aldrinum 8-12 ára.
Helstu verkefni skólastjóra eru:
- Skipuleggja námskeiðin
- Halda utan um skráningar
- Foreldrasamskipti
- Dagleg stjórnun
- Fleira tilfallandi
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni
- Áhugi
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hafa náð 22 ára aldri
- Reynsla á stjórnun er kostur
- Reynsla af skátastarfi eða öðru æskulýðsstarfi er mikill kostur
Umsóknir skulu berast á stjorn@kopar.is en athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um sumarstarf á vef Kópavogsbæjar undir heitinu „Aðstoðarleiðbeinandi á sumarnámskeiðum“. Umsóknarfrestur er til 19. mars 2018
Frekari upplýsingar veitir Hreiðar Oddsson, hreidar@kopar.is
Leiðbeinandi í Útilífsskóla Kópa
Skátafélagið Kópar auglýsir eftir leiðbeinendum í Útilífsskóla Kópa sumarið 2018. Um er að ræða skemmtilegt sumarstarf með frábæru starfsfólki og skemmtilegum krökkum á aldrinum 8-12 ára.
Helstu verkefni og ábyrgð leiðbeinanda eru:
- Þáttaka og leiðsögn í hópastarfi barna á vettvangi
- Frágangur og þrif í lok hvers dags samkvæmt ákvörðun skólastjóra.
Hæfniskröfur:
- Umburðarlyndi, jákvæð hvatning og leikgleði
- Reynsla af starfi með börnum æskileg
- Vera 18 ára á árinu (fædd 2000 eða fyrr)
Umsóknir skulu berast á stjorn@kopar.is en athygli er vakin á því að einnig þarf að sækja um sumarstarf á vef Kópavogsbæjar undir heitinu „Aðstoðarleiðbeinandi á sumarnámskeiðum“. Umsóknarfrestur er til 19. mars 2018