Aðalfundur skátafélagsins Kópa verður haldinn mánudaginn 22. Febrúar á netinu vegna samkomutakmarkanna, fundurinn verður klukkan 20:00 hlekkur á fundin mun berast síðar. Stjórn hvetur alla Kópa 14 ára og eldri, foreldra skáta í Kópum og aðra sem hafa rétt til setu á fundum til að taka þátt.

Dagskrá aðalfundar

1. Skýrsla stjórnar

2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar

3. Lagabreytingar

4. Kosningar

5. Önnur mál

Lagabreytingartillögur verða að hafa borist til stjórnar á stjorn@kopar.is 10 dögum fyrir aðalfund, þær lagabreytingatillögur verða kynntar hér á síðunni um leið og þær berast.

Kjósa þarf 5 sæti í stjórn, aðstoðarfélagsforingja, gjaldkera, fulltrúi yngir kynnslóðarinnar, ritara og einn með stjórnanda. Framboð til stjórnar þarf að hafa borist uppstillingarnefnd á uppstillingarnefnd@kopar.is viku fyrir aðalfund.

Lög félagsins má finna hér: https://kopar.is/kopar/log-skatafelagsins/

Uppstillingarnefns 2021 skipa:

Heiða Hrönn Másdóttir

Hreiðar Oddsson