­

About Ásdís

This author has not yet filled in any details.
So far Ásdís has created 17 blog entries.

Útilífsskóli Kópa 2023

Sumardagurinn fyrsti með Kópum!

Nú styttis í sumardaginn fyrsta og Kópar ætla að bjóða öllum Kópum og fjölskyldum þeirra í skátaheimilið okkar í opið hús milli 14:00-17:00! 🌞 Við ætlum að skella okkur í ratleik í dalnum og gæða okkur á heitu kakói og vöfflum.Við munum einnig afhenda Heiðursmerki til sjálfboðaliða. Komið klædd eftir veðri því við verðum eitthvað úti 🌳🌳🌳 Vonumst til að sjá sem flesta og tekið skal fram að börn verða að vera í fylgd foreldra eða annarra sem bera á þeim ábyrgð. :D

Skópar ganga í kringum Hvaleyrarvatn! Göngufélag Kópa sem heitir Skópar ætla að bjóða í létta göngu í kringum Hvaleyrarvatn í Hafnafirðinum!Gangan er fyrir alla sem vilja Við munum hittast kl. 11:00 á bílastæðinu sem merkt er inn á kortið en gangan mun byrja og enda þar.Gott er að koma með bolla því Í lok göngunnar munum við fá okkur heitt kakó og kleinur.Tekið skal fram að börn verða að vera í fylgd foreldra eða annarra sem bera á þeim ábyrgð.Ef þið komið með hundinn ykkar verður hann að vera í ól.

Auka aðalfundur

Minnum á auka aðalfund á morgun miðvikudaginn 15. mars kl 20:00 í skátaheimilinu okkar vegna kosninga í stjórn.

Það er komið að því! Skátafundir hjá okkur eru byrjaðir og skráning er opin inn á https://www.sportabler.com/shop/kopar

Útilífskóli Kópa 2022

Skráning í Útilífsskólan hefst miðvikudaginn 27. apríl! Við mælum með námskeiðunum fyrir alla hressa krakka sem langar að prófa eitthvað nýtt í sumar Skátafélagið Kópar býður upp á útilífsnámskeið yfir sumartímann og er haldið í skátaheimili Kópa við Digranesveg 79. Námskeiðin byggja á mikilli útiveru og meðal viðfangsefna eru náttúruskoðun, skátadulmál, útieldun, skátaleikir og margt fleira spennandi og skemmtilegt. Námskeiðin eru fjölbreytt og reynt eftir fremsta megni að hafa ólíka dagskrá í hverri viku. Námskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 8 til 12 ára fædd 2010 – 2014. Námskeiðin eru frá kl. 09.00 – 16.00 og boðið er upp á gæslu á milli 08.00 – 09.00 og kl. 16.00 – 17.00 sem greiða þarf aukalega fyrir. Þátttakendur þurfa að koma klædd eftir veðri, gert er ráð fyrir útiveru alla dagana, eins þurfa þátttakendur að vera vel nestaðir fyrir langan dag stútfullan af ævintýrum. Námskeið 1. 13. - 16.júní - 4 daga námskeið Námskeið 2. 20. - 24. júní Námskeið 3. 27.júní - 1.júlí Námskeið 4. 4. - 8.júlí Námskeið 5. 11. - 15.júlí Námskeið 6. 2. - 5. ágúst - 4 daga námskeið Námskeið 7. 8. - 12.ágúst Námskeið 8. 15. - 19. ágúst Námskeiðsgjald er 17.000 kr. en 14.500 kr. fyrir 4 daga viku. Gjald fyrir gæslu er 4.000 kr. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Skátafélagsins Kópa á facebook síðu Útilífsskóla Kópa eða senda póst á Útilífsskólann utilifsskoli@kopar.is Skráning er: https://www.sportabler.com/shop/kopar

Félagsútilega Kópa

- 13. mars 2022 Nú er félagsútilega þessa vetrar að bresta á. Förinni er heitið austur á Úlfljótsvatni þar sem ætlunin er að skemmta sér saman í góðra vina hópi.Dagskrá helgarinnar verður með hefðbundnu sniði og munu karkkarnir taka þátt í póstaleik, næturleik og stórleik svo eitthvað sé nefnt. Við munum verja helginni að stórum hluta úti og er því mikilvægt að börnin komi með hlý og góð föt, gott er að hafa útbúnaðarlistann til hliðsjónar þegar pakkað er, einnig er gott að pakka með skátanum svo hann viti hvar eigi að leita í töskunni þegar hann er mættur í útileguna :) Skátafélagið mun sjá um allan mat og rútuferðir til og frá Úlfljótsvatni.Þátttökugjald er 10.000 krónur. Greitt er fyrir útileguna inn á sportabler, ef að þið eruð í vandræðum með skráningu getið þið sent póst á kopar@kopar.is Við hlökkum til að sjá sem flesta og að eiga góða helgi saman!Ef spurningar vakna, endilega sendið okkur línu á kopar@kopar.is Skátakveðja,Mótstjórn Félagsútilegunnar

Aðalfundur Kópa

Aðalfundur skátafélagsins Kópa verður haldinn þriðjudaginn 22. febrúar í skátaheimilinu okkar, Bakka, kl. 20:00.Við hvetjum alla Kópa 14 ára og eldri, foreldra skáta í Kópum og aðra sem hafa rétt til setu á fundum til að taka þátt. Dagskrá aðalfundar1. Skýrsla stjórnar2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar3. Lagabreytingar4. Kosningar5. Önnur mál Kjósa þarf 3 sæti í stjórn, félagsforingja, ritara og meðstjórnanda. Framboð til stjórnar þarf að hafa borist uppstillingarnefnd á uppstillingarnefnd@kopar.is viku fyrir aðalfund.Lagabreytingartillögur verða að hafa borist til stjórnar á stjorn@kopar.is 10 dögum fyrir aðalfund, þær lagabreytingatillögur verða kynntar hér á síðunni um leið og þær berast.Lög félagsins má finna hér: http://kopar.is/kopar/log-skatafelagsins/Uppstillingarnefnd skipa:Katrín Kemp StefánsdóttirJónína AðalsteinsdóttirPáll Kristinn StefánssonÓskar H. Níelsson

Aðalfundur Kópa

Aðalfundur skátafélagsins Kópa verður haldinn mánudaginn 22. Febrúar á netinu vegna samkomutakmarkanna, fundurinn verður klukkan 20:00 hlekkur á fundin mun berast síðar. Stjórn hvetur alla Kópa 14 ára og eldri, foreldra skáta í Kópum og aðra sem hafa rétt til setu á fundum til að taka þátt. Dagskrá aðalfundar 1. Skýrsla stjórnar 2. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar 3. Lagabreytingar 4. Kosningar 5. Önnur mál Lagabreytingartillögur verða að hafa borist til stjórnar á stjorn@kopar.is 10 dögum fyrir aðalfund, þær lagabreytingatillögur verða kynntar hér á síðunni um leið og þær berast. Kjósa þarf 5 sæti í stjórn, aðstoðarfélagsforingja, gjaldkera, fulltrúi yngir kynnslóðarinnar, ritara og einn með stjórnanda. Framboð til stjórnar þarf að hafa borist uppstillingarnefnd á uppstillingarnefnd@kopar.is viku fyrir aðalfund. Lög félagsins má finna hér: http://kopar.is/kopar/log-skatafelagsins/ Uppstillingarnefns 2021 skipa: Heiða Hrönn Másdóttir Hreiðar Oddsson

Fyrsta fundarvikan á nýju ári!

Skátastarf er hafið á ný og hlökkum við mikið til að starfa með ykkur árið 2021 :D Minnum að nauðsynlegt er að koma með útiföt á skátafundi þar sem við verjum miklum tíma okkar úti í náttúrunni!