Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Lokaferð Andrómedu í Þórsmörk

22/04/2016 @ 17:30 - 24/04/2016 @ 19:00

Kæru foreldrar/forráðamenn og dróttskátar

Lokaferð Ds. Andrómedu verður haldin 22.-24. apríl næstkomandi. Haldið verður í Þórsmörk, þar sem við munum gista í skála í Básum. Í ferðinni verður spennandi dagskrá í mjög fallegu umhverfi.

Kostnaður við ferðina er 14.000 kr og innifalið í því er gisting í skála, allur ferðakostnaður, kvöldmatur á laugardagsköldi og kvöldkaffi bæði kvöldin. Hægt er að millifæra inná rkn. 0536-14-401902, kt. 160695-2779 og senda kvittun á andromeda@kopar.is, með nafn skáta sem skýringu.

Skráning fer fram inná skatar.is/felagatal og skráningarfrestur rennur út föstudaginn 15.apríl. Einnig þarf að vera búið að millifæra inná reikning á sama tíma.

Mæting er í skátaheimili Kópa föstudaginn 22.apríl kl. 17:30 og þá þufa allir að vera búnir að borða kvöldmat. Heimkoma er um kvöldmatarleitið á sunnudeginum.

Nauðsynlegt er að skátarnir komi vel útbúnir fyrir útivist og séu klædd eftir veðri. Einnig þurfa þau að taka með hollt og gott nesti. Við bjóðum uppá grillveislu á laugardagskvöldi og kvöldkaffi bæði kvöldin. Annan mat þurfa þau að taka með sér.

Ef spurningar vakna endilega sendið póst á andromeda@kopar.is

Kveðja
Dróttskátaforingjar Kópa

Details

Start:
22/04/2016 @ 17:30
End:
24/04/2016 @ 19:00

Venue

Þórskmörk