Rekkaskátar úr skátafélaginu Kópum fengu afhent forsetamerkið á Bessastöðum fyrr í dag.
Forsetamerkið er afhent árlega í Bessastaðakirkju af forseta Íslands, verndara íslenskra skáta. Skilyrði fyrir afhendingu þess er að skátinn hafi stundað þróttmikið rekkaskátastarf samfellt í tvö ár hið minnsta, hafi lokið tilskildum námskeiðum og verkefnum og hafi lifað í anda skátaheitis og skátalaga.
Við í skátafélaginu Kópum erum rosalega solt af þessum flottu stelpum, til hamingju með þennan merka áfanga Eva Rún Arnarsdóttir og Aníta Rut Gunnarsdóttir!