Dagana 26.-28. júní fer fram landsmót eldri skáta og verður það haldið á Úlfljótsvatni

Markmið mótsins er að skapa vettvang fyrir eldri skáta til að koma saman, endurnýja vinskapinn og upplifa aftur „liðin sumur og yndisleg vor”. Landsmót skáta 40+ er opið öllum eldri skátum, fjölskyldum þeirra og velunnurum.

 

Þrátt fyrir að titill mótsins sé „40+“ þá er ekki verið að vísa í aldurstakmark heldur aðeins verið að undirstrika að markmiðið er að ná til eldri skáta á öllum aldri og verða megin áherslur í dagskránni fyrir aldurshópinn 22 ára og uppúr. Þeir sem þess óska geta fengið gistingu í skála og er verð á því samkvæmt gjaldskrá Útilífsmiðstöðv­arinnar Úlfljótsvatni.

 

Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku en ef þú vilt að við tökum frá svæði fyrir hópinn þinn þá ættirðu að senda okkur tölvupóst á netfangið eittsinn@eittsinn.is sem fyrst!.

 

Tjöldum saman!

Fjölskyldur, hópar, klíkur og gömul gengi eiga þess kost að tjalda saman og í þeim tilfellum væri æskilegt að einhver talsmaður hópsins setti sig í samband við okkur svo við getum áætlað sæmilega rúmt svæði fyrir hvern hóp. Gaman væri að hóparnir myndu setja svip á mótið með því að gera sér hlið, setja upp fána og annað sem stemmning er fyrir. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku en ef þú vilt að við tökum frá svæði fyrir hópinn þinn þá ættirðu að senda okkur tölvupóst á netfangið eittsinn@eittsinn.is sem fyrst!

 

Mótsgjald

Mótsgjald er ekkert en gestir greiða tjaldgjald samkvæmt verðskrá Úlfljótsvatns.

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti á netfangið eittsinn@eittsinn.is

 

Sjáumst á Úlfljótsvatni!

Það er von okkar sem að þessu stöndum að eldri skátar noti þetta tækifæri, komi og veri með. Þetta er frábært tækifæri til að hitta gamla vini og kjörið tækifæri til að hóa saman gamla vinahópnum og drífa sig saman í skemmtilega útilegu.

 

Dagskrá

Fyrst og fremst er lögð áhersla á að mótsgestir noti tækifærið til að njóta samvista hvert við annað, rifja upp liðna daga og leggja á ráðin um ný og skemmtileg ævintýr en sem eins konar rammi utan um þann vettvang höfum við sett upp dagskrá þar sem allir geta fundið sér eitthvað við hæfi. Ef þú lumar á hugmynd að dagskrá þá skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur (eittsinn@eittsinn.is) og skemmtilegt væri auðvitað ef þú eða þið kæmuð með eitthvað sem við öllum gætum notið og tekið þátt í.

 

Föstudagur 26. júní:

 

  • Tjaldsvæði Landsmóts skáta 40+ opnar formlega.
  • Fræðasetur skáta opið – rjúkandi kaffi og gómsætar vöfflur.
  • Veiði í Úlfljótsvatni fyrir mótsgesti Munið bara eftir að taka veiðistöngina með ykkur á mótið.
  • Kaffihúsastemmning eldri skáta hefst kl. 22:00. Að sjálfsögðu verðum við aftur með kaffi, kakó og vöfflur.

 

Laugardagur 27. júní:

 

  • Opin dagskrá og fjöldi dagskrártilboða Veiðikeppni, skemmtileg og uppbyggjandi verkefni í þágu staðarins og Fræðasetur skáta opið allan daginn.
  • Gönguferðir undir leiðsögn kl 13:30 Þrjár mismunandi leiðir farnar undir leiðsögn.
  • Landsmótsgrillið kl. 18:30 Sameiginlegt grill er á tjaldsvæðinu eins og í fyrra. Kveikt verður upp í grilli og hver og einn kemur með sinn mat.
  • Hátíðarvarðeldur kl. 21:00 Dúndrandi söngur, skemmtiatriði og tilheyrandi.
  • Kaffihúsastemmning eldri skáta hefst kl. 22:00. Að sjálfsögðu verðum við enn og aftur með kaffi, kakó og vöfflu.

 

Sunnudagur 28. júní:

 

  • Tjaldbúðaskoðun með gamla laginu kl. 10:30.
  • Opin dagskrá og fjöldi dagskrártilboða Veiði í vatninu, kaffihúsastemning í lokin og ýmis verkefni í þágu staðarins.
  • Fræðasetur skáta opið frá kl. 10 – 12.
  • Brekkusöngur og mótsslit kl. 13:30.
Categories: Fréttir