12. nóvember síðastliðinn vígðust 17 drekaskátar inn í félagið okkar og fengu sinn fyrsta skátaklút. Drekaskátarnir stóðu sig rosalega vel og voru glöð með að fá loksins klútinn.
Að athöfninni lokinni sungu skátarnir ásamt foreldrum/forráðamönnum nokkra skátasöngva og var svo boðið upp á kaffi, kakó og kex.
Þeir sem ekki komust á vígsluna verða svo vígðir á næsta fundi sem þeir komast á 🙂